Pinned Tweet
Ég er að fara að gefa mitt fyrsta EP út 21. júní. Þrjú tracks sem öll sampla íslenskt rapp. Digital og vinyl. Gefið út með @Geoffreyskywalk og co hjá Sticky Records/Prikinu. Ekkert vesen. Bara gaman.
Arnar retweeted
Ég er svo ógeðslega hræddur um að flokkar komist til valda hérna sem ætla að hrófla við borgarlínunni. Bara rétt fikta nógu mikið í henni, til þess að þetta hætti að vera hágæða verkefni og verði þess í stað hin dæmigerða íslenska æpa. Þetta er það eina sem ég hef verið spenntur fyrir í Reykjavík, síðan ég man eftir mér.
Ég finn að ég er byrjaður að þróa með mér svona kaldhæðna- brynju um niðurstöður kosninganna. Eins og mér sé dröll, en mér er ekki dröll.
Ég keyri heavy mikið, þú veist stundum 2000km á mánuði. Tek strætó heavy mikið. Hjóla smá. á þrjú börn, hund. Með allt í gangi. Leiðakerfi og tíðni borgarlínunnar myndi gjörbreyta því hvernig ég fer um, þó ég myndi samt mest hossast á bíl.
Mér finnst engar gáfulegar umræður hafa farið fram um borgarlínuna fyrir þessar kosningar. Þeir sem eru á móti, og eru með einhverjar þriðja flokks útfærslur að stinga upp á staðinn - nálgast borgarlínuna sem samgönguverkefni, en hún er svo miklu miklu miklu meira. Að láta eins og þetta sé einhver trilljarða bein fyrir Samfylkinga-fólk, bara plís. Þetta er sérsniðin lausn sem mun koma einstaklega vel við borgarbúa, sama hvort þeir nýti sér vagnana eða ekki.
Hún saumar saman borg sem fúnkerar illa, hún mætir þörfum yngri kynslóðar og hún kallar á mjög organíska þéttingu, þar sem þjónusta og íbúðir byggjast í grennd við stoppistöðvar.
Bara umræðurnar um Suðurlandsbrautina, hafa aldrei farið dýpra en hróp og köll um að það sé verið að þrengja umferð. Hefur fólk kynnt sér hvernig skipulagið við Suðurlandsbrautina er? Það er ógeðslega flott og ógeðslega spennandi, býr til alvöru borgargötu í gegnum Reykjavík. Þarna mun vera stræti stútfullt af þjónustu og íbúum við fokking þjóðarleikvanginn! Og á þessari leið, í götum fyrir ofan er ennþá bara mikið af húsnæði sem stendur autt eða er í dularfullri notkun, þar sem eitthvað spennandi getur kviknað, ólíkt því steríla drasli sem sem getur greitt leigu í því nýbyggða.
Það er einhver dýpt farin úr umræðunum um þetta. Og þvílík vonbrigði að sjá eftir Hildi Björns fara þennan veg. Þetta er manneskja sem ég hef heyrt tala af innlifun um borgarlínuna. Þetta er manneskja sem hefur hingað til staðið keik og kosið með öllum þeim ákvörðunum sem hafa komið þessu verkefni á þann stað sem það er í dag.
Og svo er hún mætt til Tóta að hnussa og fussa og láta eins og þetta sé eitthvað tómt píp úr einhverjum galgopum á Kaffi Vest. Djöfulsins drasl.
Allavega þegar við Hildur hittumst á Hosiló í vetur og hún spurði mig hvort ég vildi taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi kosningar - þá var hún talsmaður Borgarlínunnar. Hvað gerðist í millitíðinni - ég veit það ekki.
Það er fólk í framboði, það er fólk sem mun enda í borgarstjórn sem segist ætla að byggja íbúðir í útjaðri Reykjavíkur og laga umferðina - þau segja þetta oft í sömu setningu. Þau ætla að laga umferðina með því að bæta við bílum í hana. Ég veit ekki alveg hvað maður segir við þessu. Er þinn frambjóðandi heimskur? eða er hann lygari?
Það verður ekki bæði haldið og sleppt. Það sem við spörum með því að þynna út Reykjavík, því töpum við svo í umferðinni - og öfugt.
Borgarlínan er svo fokking vandað verkefni. Og það er ekki að ástæðulausu að það eru bara gamlir karlar sem skrifa greinar gegn henni - (og enginn þeirra minnist á skipulagsþáttinn)
Á að neyða fólk upp í borgarlínuna? Nei maður. Alls ekki. En þú ert neyddur til að borga skatta mánaðarlega og pls setjum þá í eitthvað sem er alvöru.
En þú veist, líklega mun þetta fara til fjandans. Ég jafna mig, heima vorum við Alþýðubandalagsfólk á meðan Davíð Oddsson var Davíð Oddsson og við kunnum þá list að éta skít betur en aðrir.
Ég verð samt að reykja vindil og hlusta á rapp.
(Að gefnu tilefni, hef aldrei kosið Samfylkinguna og myndi aldrei taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins)
Arnar retweeted
1970: One more lane will fix it.
1980: One more lane will fix it.
1990: One more lane will fix it.
2000: One more lane will fix it.
2010: One more lane will fix it.
2020s: Ok, let’s try public transport and bike lanes
Arnar retweeted
Mikill er máttur Miðflokksins ef Hildur var á þessari skoðun fyrir 5 árum en hefur tekið algjöra U-beygju hvað varðar almenningssamgöngur og samgöngusáttmálann.
Er það í alvöru trúverðugt?
D í RVK skilar auðu þegar kemur að framtíðarsýn fyrir borgina.
Arnar retweeted
Floni. Trylltasta íslenska listamannsnafnið. Fullkomin blanda af new age og einhverri old old old school ríða þvert yfir landið á Þingvelli orku
Þegar hann mætir á svæðið er orkan hans svo algjörlega á skjön við allt annað hér á landi
Ævarandi virðing á Flona
Þetta take er svo fyrirsjáaanlegt að það lookar semi AI generated
Það eru engar líkur á öðru en að þessi hópur komist að annari niðurstöðu en þeirri að Ísland þurfi að taka upp evru.
vb.is/frettir/fjorir-serfrae…
1
18
2,576
Arnar retweeted
Replying to @dylanali_
every time someone uses the word rave to mean music playing from a speaker an angel loses its wings
he’s not gonna shag you mate
Aksjónkallinn @FrostiLoga er 47 ára í dag. Umdeildur, óhræddur en aldrei hundsaður. 🎈
Arnar retweeted
Honesty isn't aggressive - fucking bombs are
Irish Rap Group Kneecap Projects Aggressive Pro-Palestine, Anti-Israel Messages During Coachella Sets variety.com/2025/music/news/…
Arnar retweeted
Þessi mellow cover-laga playlista blæti verður að fara hætta hjá veitingastöðum og verslunum. Þetta er svívirða gagnvart listamönnum. Þið sparið engan pening á þessu. Þið eruð bara að ræna útgefendur og listamenn.
Arnar retweeted
Samfylkingin mælist stærst á kjördegi og stendur með risabúnt af rauðum rósum í höndunum tilbúin að leiða nauðsynlegar breytingar á næstu árum.
Nú er tækifæri til að draga línu í sandinn og skilgreina nýtt upphaf. Ef þú vilt breytingar þá þarftu að kjósa breytingar!
🌹🫵🌹
Arnar retweeted
Replying to @fs3786
@fs3786 og @youngnazareth með gríðarlega mikilvæg skilaboð á hápunkti baráttunnar! 👏👏👏
Kjósum xS á morgun 🌹🌹🌹
visir.is/g/20242657479d/kosn…
Arnar retweeted
Hún er mætt! Kosningalimran🌹
visir.is/g/20242657479d/kosn…
Arnar retweeted
🤷♂️🤷♂️
Hefur Sjálfstæðisflokkurinn hækkað eða lækkað skatta? 🤷🏼♂️ visir.is/g/20242655987d/hefu…

























