Afturelding (@umfafturelding) header
Afturelding (@umfafturelding) profile picture

⚽️ Afturelding 📍 Mosfellsbær - Iceland 🎸 Main shirt sponsor - @officialkaleo 📸 https://xitter.cf/t.co/2fvQIDMrRE

Iceland
Joined January 2018
Photo by Afturelding (@umfafturelding)Photo by Afturelding (@umfafturelding)Photo by Afturelding (@umfafturelding)Photo by Afturelding (@umfafturelding)Photo by Afturelding (@umfafturelding)Photo by Afturelding (@umfafturelding)Photo by Afturelding (@umfafturelding)Photo by Afturelding (@umfafturelding)Photo by Afturelding (@umfafturelding)Photo by Afturelding (@umfafturelding)
FRÍTT á völlinn á sunnudag í boði KFC. Mætum öll í rauðu og hvetjum strákana til sigurs í fyrsta heimaleik í úrslitakeppninni! Sunnudagur klukkan 16:00 Afturelding-KA
10
1,062
Aron Jóhannsson innsiglaði sigurinn með flottu marki! ⚽️ Afturelding - Stjarnan | #bestadeildin
1
1
3
2,302
Hrannar Snær kom Aftureldingu yfir eftir frábæran undirbúning Elmars Kára! 🤩 Afturelding - Stjarnan | #bestadeildin
1
8
3,077
🔴⚪️ Afturelding 3-0 Stjarnan 🔵🔵 🔴⚪️ Hrannar Snær Magnússon 🔴⚪️ Georg Bjarnason 🔴⚪️ Aron Jóhannsson Grosse performance d'Afturelding, une nouvelle fois transcendé par ses supporters ! Stjarnan dans une mauvaise passe, 3ème défaite d'affilée. #BestaDeildin
1
1
1
904
Nýliðaslagur í Mosfellsbæ þegar Afturelding og ÍBV mætast! 📌 Malbikstöðin að Varmá ⏲️ 17:00 ⚽️ @umfafturelding 🆚 @IBVsport 🎟️ Miðasala á stubb.is
1
7
1,035
Besta deildin - Mosó brósar (Afturelding) Besta deildin hefst 5. apríl | #bestadeildin
4
80
7,495
Opnunarleikur Bestu deildar karla í ár verður leikur Breiðabliks og Aftureldingar á Kópavogsvelli laugardaginn 5. apríl. Sunnudaginn 13. apríl kemur ÍBV í heimsókn á Malbikstöðina að Varmá í fyrsta heimaleik Aftureldingar í Bestu deildinni. Í Lengjudeild kvenna byrjar Afturelding á því að mæta KR á Malbikstöðinni að Varmá laugardaginn 3. maí. Sjáumst á vellinum í vor. Áfram Afturelding! 📸 Raggi Óla & Hafliði Breiðfjörð
12
1,387
Elmar Kári framlengir út 2026 ✍ Kantmaðurinn Elmar Kári Enesson Cogic hefur framlengt samning sinn við Aftureldingu en nýi samningurinn gildir út tímabilið 2026. Elmar Kári er uppalinn hjá Aftureldingu og hefur spilað með liðinu allan sinn feril. Hinn 22 ára gamli Elmar spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik árið 2020 og hefur síðan þá vaxið jafnt og þétt yfir í að vera lykilmaður í liðinu. Árið 2023 var Elmar Kári valinn besti leikmaður tímabilsins og knattspyrnumaður Aftureldingar. Samtals hefur Elmar skorað 41 mark í 95 deildar og bikarleikjum með Aftureldingu auk þess að leggja upp fjölda marka til viðbótar. Elmar var valinn í lið ársins í Lengjudeildinni bæði árið 2023 og 2024. Afturelding fagnar því að Elmar hafi framlengt samning sinn og spennandi verður að sjá hann í Bestu deildinni í Mosfellsbæ næsta sumar!
1
25
2,796
Blikabræður í Aftureldingu 2007-2009 Rannver Sigurjónsson (52 leikir - 15 mörk) 2007 Viktor Sigurjónsson (1 leikur) 2024-? @OSigurjonsson
1
9
3,198
Rannver á skotskónum með Aftureldingu árið 2009
5
832
Oliver Sigurjónsson í Aftureldingu ✍️ Miðjumaðurinn Oliver Sigurjónsson hefur gengið til liðs við Aftureldingu. Oliver kemur til Aftureldingar frá Breiðabliki og skrifar undir tveggja ára samning í Mosfellsbæ eða út tímabilið 2026. Oliver er uppalinn hjá Breiðabliki en hann á að baki 152 leiki með félaginu í efstu deild sem og 28 leiki í Evrópukeppnum. Hinn 29 ára gamli Oliver hefur einnig verið á mála hjá AGF í Danmörku og Bodö/Glimt í Noregi á ferli sínum. Oliver á einnig tvo A-landsleiki að baki fyrir Íslands hönd sem og 50 leiki með yngri landsliðum Íslands. Þess má til gamans geta að Rannver og Viktor, eldri bræður Olivers, eiga báðir leiki að baki með meistaraflokki Aftureldingar á Íslandsmóti. Rannver spilaði með Aftureldingu frá 2007 til 2009 og var lykilmaður þegar liðið komst upp úr 2. deildinni árið 2008. 🎙,, Tilfinningin er frábær að koma til Aftureldingar. Mitt nýja heimili þar sem báðir bræður mínir hafa spilað með í fortíðinni. Hér er harður og sterkur kjarni af stuðningsmönnum sem styður við liðið. Hér er verið að byggja upp félag með sterkar undirstöður og gildi sem snýst um frammistöður og trú á hvort öðru til að bæta okkur. Þetta er það sem ég vil standa fyrir og því er tilfinningin æðisleg,” segir Oliver. ,,Það er spenna fyrir því að Malbika hin liðin að Varmá fyrir framan Aftureldingar stuðningsmenn í Bestu deildinni. Þetta eru spennandi leikir og ég tel okkur vera með nógu gott lið til að ná í fullt af sigrum og bætingum.” Afturelding býður Oliver hjartanlega velkominn í Mosfellsbæinn! 📸 Raggi Óla
8
734
Jökull Andrésson í Aftureldingu ✍️ Markvörðurinn Jökull Andrésson hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt Aftureldingu á nýjan leik. Jökull skrifaði undir tveggja ára samning eða út tímabilið 2026. Jökull kom til Aftureldingar á láni frá enska félaginu Reading í júlí síðastliðnum og hjálpaði Aftureldingu upp í Bestu deildina í fyrsta skipti í sögunni. Jökull er nú laus allra mála frá Reading og mun spila með Aftureldingu næsta sumar. Jökull spilaði með yngri flokkum Aftureldingar áður en hann flutti ásamt fjölskyldu sinni til Englands á unglingsárunum þegar bróðir hans Axel Óskar gekk í raðir Reading. Síðan þá hefur Jökull verið á mála hjá Reading en undanfarin ár hefur hann einnig leikið í þriðju og fjórðu efstu deild á Englandi á láni með Exeter, Carlisle, Morecambe og Stevenage. Jökull á einn landsleik að baki með A-landsliði Íslands sem og sjö leiki með yngri landsliðum. 🎙 ,,Þetta er bara ótrúleg tilfinning. Að hjálpa liðinu að komast upp í Bestu deildina í fyrsta skipti ever og fá svo að spila með þeim áfram líka er ótrúlega spennandi. Að spila með bróðir mínum Axel bætir við extra spennu. Þessi tilfinning sem ég fékk frá þessum klúbb á seinasta tímabili er tilfinning sem ég er ekki búinn að upplifa í langan tíma í fótbolta og ég er spenntur að upplifa hana í heilt tímabil,” segir Jökull. ,,Það eru allir ótrúlega spenntir fyrir Bestu deildinni. Það eru margir leikmenn sem hafa aldrei spilað í henni þannig það verður auka eldur þegar við munum spila á þessu tímabili. Eins og ég sagði í viðtalinu eftir úrslitaleikinn þá erum við ekki bara að fara vera í henni til að vera, við ætlum að sjalfsögðu bara reyna að vinna hana. Ég held þetta verði ótrúlega spennandi og við munum koma mjög mörgum á óvart.” Afturelding býður Jökul hjartanlega velkominn heim í Mosfellsbæinn! 📸 Raggi Óla
6
533
Axel Andrésson í Aftureldingu ✍️ Varnarmaðurinn Axel Andrésson hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt Aftureldingu á nýjan leik. Axel kemur til Aftureldingar frá KR og skrifar undir þriggja ára samning eða út tímabilið 2027. Axel er uppalinn hjá Aftureldingu en hann var meðal annars valinn knattspyrnumaður Aftureldingar árið 2013 þegar hann var í liði 3. flokks sem fór í úrslit á íslandsmótinu. Árið 2014, þegar Axel var 16 ára gamall, spilaði hann átta leiki í 2. deildinni með meistaraflokki Aftureldingar áður en hann var seldur út til Reading á Englandi. Hinn 26 ára gamli Axel var tíu ár erlendis í atvinnnumennsku þar sem hann spilaði meðal annars með Viking í Noregi, Örebro í Svíþjóð og Riga í Lettlandi. Samtals á Axel á annað hundrað leiki að baki í atvinnumennsku erlendis. Axel á einnig tvo A-landsleiki að baki fyrir Íslands hönd sem og 46 leiki með yngri landsliðum Íslands. 🎙 ,,Það er frábær tilfinning að vera kominn aftur á heimaslóðir eftir dágóðan tíma í burtu. Við erum mjög spenntir fyrir bestu deildinni og getum eiginilega ekki beðið," segir Axel. ,,Þetta er mjög sérstakt þar sem ég og Jökull erum að skrifa undir saman og draumurinn minn er búinn að vera lengi að fá að spila með honum. Ég horfði á alla leikina hjá Aftureldingu í fyrra og heillaðist svo mikið af strákunum. Spennan að spila fyrsta tímabilið í bestu deildinni fyrir klúbbinn sem hjartað slær fyrir er ótrúleg. Að fara frá Eldingunni fyrir rúmum 10 árum og koma aftur núna og sjá hversu flottur klúbburinn er, er geggjað. En þetta er bara byrjunin." Afturelding býður Axel hjartanlega velkominn heim í Mosfellsbæinn! 📸 Raggi Óla
12
1,078
Þórður Gunnar í Aftureldingu✍️ Kantmaðurinn Þórður Gunnar Hafþórsson hefur gengið til liðs við Aftureldingu. Þórður kemur til Aftureldingar frá Fylki og skrifar undir tveggja ára samning í Mosfellsbæ eða út tímabilið 2026. Þórður er uppalinn hjá Vestra og var byrjaður að spila með meistaraflokki þar þegar hann var einungis 15 ára. Þórður á einnig að baki níu leiki með yngri landsliðum Íslands. 🎙 ,,Tilfinningin er gríðarlega góð. Það er frábært að vera mættur hérna í Mosfellsbæinn. Ég er mjög spenntur fyrir komandi tímum og ég veit að við eigum eftir að eiga mjög góða tíma saman,” sagði Þórður eftir undirskrift. ,,Ég er mjög spenntur fyrir því að spila með Aftureldingu í Bestu deild. Þetta er frábær hópur og við eigum eftir að gera góða hluti saman.” Afturelding býður Þórð hjartanlega velkominn í Mosfellsbæinn! 📸 Raggi Óla
1
6
427
Við fengum þa bara🤙
Jökull og Axel eru komnir heim✍️
2
28
8,387
Jökull og Axel eru komnir heim✍️
7
4
83
17,537
Sævar Atli framlengir ✍ Miðjumaðurinn Sævar Atli Hugason hefur framlengt samning sinn við Aftureldingu um tvö ár eða út tímabilið 2026. Sævar er uppalinn hjá Aftureldingu en hann steig sín fyrstu skref með meistaraflokki félagsins árið 2022
1
6
413
Síðan þá hefur Sævar skorað fimm mörk í 33 leikjum í Lengjudeildinni með Aftureldingu. Á nýliðnu tímabili skoraði Sævar þrjú mörk í nítján leikjum þegar hann hjálpaði Aftureldingu upp í Bestu deildina í fyrsta skipti í sögunni
1
1
273
Afturelding fagnar því að Sævar hafi framlengt samning sinn og spennandi verður að sjá hann taka slaginn í Bestu deildinni í Mosfellsbæ!
207