Almannaheillatilkynning:
Laus skrifstofa á Vinnustofum Vesturbæjar fyrir ofan okkur. Þar eru 8 skrifstofur ca 20fm, 1-4 inná hverri skrifstofu. Skapandi umhverfi, sameiginleg kaffistofa og fundarherbergi. Viljum bara gott fólk. Áhugasöm sendi DM eða kaffihusvesturbaejar@gmail.com
Við erum að leita að góðu fólki sem langar að vinna hjá okkur. Okkur vantar bæði fólk í fullt starf og hlutastarf. Áhugasöm sendi póst á kaffihusvesturbaejar@gmail.com eða kíkið til okkar með ferilskrá.
Það er bóndadagur á morgun. Faraldurinn er í lágmarki og sóttvarnir góðar. Er ekki tilvalið að bregða undir sig betri fætinum á morgun og fá sér vel að borða í tilefni dagsins og bjóða þorra velkominn?
(Það er líka hægt að fá non-kjötrétti af krítartöflunni fyrir þá sem vilja).
Okkar maður @gustichef í sviðsljósinu. Þessi frábæra súpa er á seðlinum hjá okkur og er fullkomin í þessari tíð.
visir.is/g/20212060596d/vega…
1
Kaffihús Vesturbæjar retweeted
Minna en 1% smita rakin til veitingahúsa og bara hérna í Oslo.
Algengast að smitast heima, vinnunni eða í ferðalögum.
Einhver svipuð tölfræði til fyrir Reykjavík?
Það er opið hjá okkur, en við fylgjum ákveðnum reglum og biðjum gesti okkar um að gera það líka. 20 gestir max, hægt að sitja úti, hægt að hringja og panta mat og koma og sækja. Reynum að passa okkur og aðra og komumst í gegnum þetta ástand saman!
Það hefur verið staðfest af fjölda gesta að betri bouillabaisse fæst ekki vestan Lækjar. Kvöldmatur hjá okkur frá kl. 17 til 21 öll kvöld. Frábær búrgundarvín á góðu verði. Verið hjartanlega velkomin!
This Post is from an account that no longer exists. Learn more
3
Dagurinn í dag ku vera helgaður pinot noir berinu. Það er skemmtilegt fyrir okkur, því við bjóðum (nær) eingöngu upp á það ágæta ber í rauðvínunum okkar. Þau eru að vísu ekki frá Romanée-Conti, en næstu bæjum við! Fín ástæða til að skella sér á pinot noir í kvöld!
For #PinotNoir Day, we invite you at the heart of one of the most famous Pinot Noir plots in the world: the Romanée-Conti! A 360° degree vision that we never tire of: https://xitter.cf/t.co/IFsDCybA1n
#PinotNoirDay #RomanéeConti
1
Kaffihús Vesturbæjar retweeted
Ég er búinn að fara oftar í sumar að borða á @kaffivest en ég hafði gert til samans frá opnun. Ástæðan er einföld; @gustichef er tekinn við eldhúsinu og maturinn er geggjaður! <3
Vorum svo stálheppin að fá @gustichef til að stýra eldhúsinu okkar. Mikil gleði með það í Vesturbænum. Nýir réttir að detta inn og í kvöld var stórkostleg bleikja á krítartöflunni, líka bleikjutartar og geggjað salat með bökuðum kúrbít með harissa og heimagerðum ricotta! Veisla.
7
Þótt @bjornteits sé ekki á landinu verðum við samt með spargelzeit í brönsinum okkar! Allir velkomnir!
Við tökum allar ákvarðanir og leiðbeiningar yfirvalda mjög alvarlega og höfum sett okkur strangar verklagsreglur í ljósi aðstæðna. En hvernig skilur fólk 2ja metra regluna? Mega hjón koma á kaffihús og borða saman í návígi? Mega vinir hittast í bjór slúðursession í <2m fjarlægð?
Gjafakort á KaffiVest er um það bil hin fullkomna gjöf fyrir þau sem vilja frekar gefa upplifun en hluti. Bröns, kvöldverður, kaffibollar - við getum sérsniðið upplifunina að þörfum þiggjandans. ❤️🎁
Takk!
Kaffi Vest er 5 ára í dag. Þvílík lyftistöng fyrir nærsamfélagið... og mig. ♥️ Til hamingju @kaffivest
6














