Vladimír Pútín vill hitta Donald Trump Bandaríkjaforseta og Xi Jinping, leiðtoga Kína, til að skipta heiminum í áhrifasvæði stórvelda. Fundurinn yrði án fulltrúa Evrópu.
Lesa: hmld.in/FHJV
Volodymyr Zelensky segir að Úkraína hafi ekki fengið viðvörun áður en Rússar skutu 16 skotflaugum á Kyiv-hérað. Marco Rubio hafnar því að upplýsingamiðlun hafi verið stöðvuð. Trump sakar Zelensky um að vilja stríð.
Lesa: hmld.in/FHJU
Í Farskólanum á Sauðárkróki er boðið upp á margvísleg námskeið í matarhandverki með það að markmiði að auka verðmætasköpun bænda. Framkvæmdastjórinn, Halldór B. Gunnlaugsson, er sjálfur úr sveit og sá þörf á að bæta aðgengi bænda að símenntun. hmld.in/FGz5
Verkir eru algengasta ástæða þess að fólk leitar til heilbrigðisþjónustunnar. Grundvallarmunur er á hvernig verkir eru meðhöndlaðir eftir gerð. Það eru þó ýmsar bjargir sem fólk hefur hér á landi til að fá meðferð við verkjum og til sjálfshjálpar. hmld.in/FHFH
Hvers vegna ætti einn stærsti orsakavaldur verðbólgunnar að vera undanþeginn mótvægisaðgerðum? spyr Stefán Ólafsson, prófessor og starfsmaður Eflingar.
Lesa: hmld.in/FHJS
Eitt helsta einkenni nútímamanneskjunnar er að vita allt best. hmld.in/FHFM
Heimurinn er kominn yfir sjö af níu þolmörkum jarðar. Prófessorinn Johan Rockström segir þróunina áhyggjuefni en að lausnir séu þegar til staðar. Smáríki þurfi að taka þátt í að leiða sjálfbæra framtíð.
Lesa: hmld.in/FHHa
Páll Jakob Líndal, doktor í umhverfissálfræði, segir fegurðarskyn fólks byggja á gildismati þess og að því sé ekki auðvelt að breyta. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra sagði að við þyrftum að „laga fegurðarskynið okkar að orkuskiptabyltingunni“. hmld.in/FHHl
Þorvaldur S. Helgason skrifar um Fasteignamartröðina eftir Gabrielė Labanauskaitė, sem sýnd er í Samkomuhúsinu. hmld.in/FHJI
Þingmenn stjórnarandstöðunnar kröfðust svara um hvort Eftirlitsstofnun EFTA muni draga málshöfðun gegn Íslandi til baka verði bókun 35 samþykkt á Alþingi. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra sagðist ekki vita hvað stofnunin myndi gera.
hmld.in/FHJB
Jón Gnarr heldur áfram í flokknum þó hann segi skilið við þingflokkinn. Formaður Viðreisnar segir að honum sé fjálst að snúa aftur hvenær sem er.
Jón Gnarr ætlar að sitja áfram á Alþingi utan flokka en styðja ríkisstjórnina. Þingmenn stjórnarflokkanna eru nú 34 en voru 36 í upphafi kjörtímabilsins. Tveir þingmenn utan flokka styðja þó áfram stjórnina.
hmld.in/FHIy
Engin kæra eða tilkynning hefur borist lögreglu vegna ferðar þingmannanna í Selárlaug og því verður málið ekki tekið til efnislegrar meðferðar hjá embættinu. Forstöðumaður sundlauga í Reykjavík segir svona tilvik ekki hafa komið upp um árabil.
hmld.in/FHIx
„Það er kominn tími til að Zelensky fari frá,“ skrifaði Elon Musk á X, á sama tíma og Úkraínumenn segja Bandaríkin hjálpa Rússlandi í stríðinu.
Lesa: hmld.in/FHIu
Úkraínskir embættismenn segja að Bandaríkin hafi hótað að stöðva miðlun upplýsinga um eldflaugaskot Rússa og að breytingar á Starlink í eigu Elons Musk hafi skert tengingar dróna hersins.
Lesa: hmld.in/FHIp
Vindhviður fóru upp í 55 metra á sekúndu á Siglufirði í djúpri lægð sem á sér ekki hliðstæðu frá árinu 1963.
Lesa: hmld.in/FHIl
Bandaríkin vilja rífa niður Alþjóðlega sakamáladómstólinn. Ísraelar líkja fyrrverandi dómara við dómstólinn, sem hlaut friðarverðlaun Nóbels, við áróðursmeistara nasista. Hún varar við hættunni í viðtali.
Lesa: heimildin.is/grein/27450/fri…
Forsætisráðherra minnti á að stéttarfélögin stæðu sterkari saman en sundruð þegar hún ávarpaði þing Alþýðusambands Íslands. Hún sagði verkalýðshreyfinguna mun stærri en stjórnmálaflokka, hvað þá einstaka forystumenn.
Lögregla stöðvaði útsendingar Halk TV og stjórnandi skipaður af stjórnvöldum tók við rekstrinum. Saksóknarar rannsaka stjórnarformann stöðvarinnar vegna gruns um mútur, útboðssvik og peningaþvætti. Hann segir ásakanirnar tilhæfulausar.
hmld.in/FHIg
Tilfinningaleg örmögnun aldurshópsins 25–34 ára er hæst allra aldurshópa þegar litið er yfir vinnuárið. Kulnun stendur í stað en 27 prósent svarenda töldu sig koma litlu til leiðar í starfi þegar þeir mátu eigin árangur.
hmld.in/FHIh










