Fimleikafélag Hafnarfjarðar retweeted
Ída Marín Hermannsdóttir var besti leikmaður júlí mánaðar í Bestu deild kvenna! 👏 #bestadeildin
Jóhannes Kristinn Bjarnason gengur til liðs við Fimleikafélagið út tímabilið í láni frá Víkingum.
"Jóhannes er búinn að sýna og sanna að hann er toppleikmaður í þessari deild og hann kemur til með að styrkja okkur mikið á lokasprettinum í deildinni." segir Davíð Þór Viðarsson um Jóa við FH media.
Sælkeraveislan var einstaklega góð í gærkvöldi á Fiskfélaginu þegar nefndin kom saman.
Leikmenn júní mánaðar eru þau Andrea Rán og Jökull Andrésson 🤝
#VIðErumFH
FH og KR hafa komist að samkomulagi um félagaskipti Guðmundar Andra Tryggvasonar. Guðmundur Andri gerir samning við FH út tímabilið 2028 og verður löglegur með Fimleikafélaginu 16. júlí 🤝
"Við erum mjög ánægðir með að hafa náð í Guðmund Andra. Hann sýndi það seinni hluta tímabilsins í fyrra hvers hann er megnugur og nú ætlum við að hjálpa honum að komast í toppstand og hann að hjálpa okkur að klífa upp töfluna. Andri er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst allar stöður framarlega á vellinum, virkilega góður fótboltamaður með gott auga fyrir spili og að koma sér í marktækifæri. Við bjóðum Andra hjartanlega velkominn "aftur" í Krikann." segir Davíð Þór Viðarsson við FH media!
#ViðErumFH
Oliver Stefánsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Fimleikafélagið. Oliver á 65 leiki í efstu deild á Íslandi, langflesta þeirra fyrir uppeldisfélag sitt, ÍA. Oliver gengur til liðs við FH frá pólska liðinu GKS Tychy og fær leikheimild 16. júlí💪
"Um leið og við fréttum af því að Oliver væri laus allra mála í Póllandi fórum við strax af stað og við erum mjög ánægðir með að hafa landað honum. Þrátt fyrir vera bara 24 ára þá er hann orðinn reynslumikill, bæði með góða reynslu úr Bestu deildinni ásamt því að hafa spilað erlendis.
Oliver er öflugur varnarmaður sem líður vel á boltanum, harður í horn að taka og góður stjórnandi.
Hann byrjar núna strax að æfa með okkur og verður klár í slaginn þegar leikheimildin dettur í hús fyrir leik okkar gegn Breiðabliki 20. júlí." Davíð Þór við FH media🤝
Gils Gíslason hefur framlengt samning sinn við Fimleikafélagið út keppnistímabilið 2029 🤝
"Við erum mjög ánægðir með að hafa framlengt við Gils. Hann hefur alla burði í það að verða lykilmaður hjá okkur á næstu misserum. Hlutverk hans hefur stækkað í ár og með hans hraða og x-faktor þá er það sameiginleg ábyrgð leikmannsins og félagsins að halda áfram að þróa og bæta leik hans svo að hann nái að springa út." sagði Davíð Þór í samtali við FH media
#ViðErumFH
Ásgeir Steinn Steinarsson hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við Fimleikafélagið sem gildir til loka keppnistímabilsins 2028 🤝
"Ásgeir Steinn er virkilega hæfileikaríkur leikmaður með mjög góða tækni og spyrnugetu. Hann hefur aðeins verið frá undanfarið vegna heilahristings en er á batavegi. Við hlökkum mikið til að halda áfram að vinna með honum og fá það allra besta út úr honum." sagði Davíð Þór við media deildina nú í morgun!
#ViðErumFH
Það var einstök nefnd sem kom saman nú í hádeginu á Fiskfélaginu og réð ráðum sínum.
Ingibjörg Magnúsdóttir og Tómas Orri eru leikmenn maí mánaðar 🤝
Til hamingju bæði tvö 👊
😮💨📸
Treyjan fæst hér: fh.is/vara/sa-einstaki/
Hægt verður að nálgast allar treyjur eftir helgi🤝






























