Gefðu mér frekar bara það að vera í 2-4. sæti og vera í einhverri þykjustu baráttu um fyrsta sætið og fá svo silfur en þennan viðbjóð. Gjörsamlega shocking frammistaða. Menn eru að molna niður úr stressi. Ofhugsa allt. Taka ekki eina "in the flow" ákvörðun.
Mjög sorglegt að Húrra Reykjavík sé að loka. Við þurfum svona verslanir. Þær gefa götunum okkar líf. Vonandi að þetta sé ekki það sem koma skal.
Ég er kominn með nóg af þessu VAR drasli. Þetta er alltaf víti, en þetta er bara rautt í VAR heimi. Það er búið að taka common sense af dómurum. Það sem áður hefði verið gult er í dag rautt af því það er sýnt 88x í 8x slowmo. Tempóið er minna, tilfinningarnar minni. Út með þetta.
Við sáum alfarið um það sjálfir að tapa þessum leik. Lélegt orkustig frá upphafi sem er ansi erfitt að breyta í miðjum leik. Leiðinlegur endir á annars heilt yfir jákvæðu móti.
Fyrstu 20 mínútur þessa leiks eru lélegustu mínútur landsliðsins á þessu móti. Ég hélt að við kæmum inn með orkuna og geðveikina og Króatía hefðu lítinn áhuga á þessu - en það er þveröfugt. Það verður krefjandi að ná að snúa þessu.
Frábær frammistaða á móti besta liði heims. Það vantaði markvörslu, that's it. Annað var heilt yfir frábært. Það er ennþá medalía í boði, sem væri stórkostlegt afrek.
Mér finnst það ætti að sekta fyrirtæki fyrir að auglýsa "við styðjum íslenska landsliðið" ef þau gerðu það ekki með einhverjum hætti í raun og veru.
Það er ekki laust við að maður sé bara orðinn ógeðslega spenntur og stressaður fyrir þessum leik. Eins og Óli sagði, þetta er stórkostlegt nú þegar - en nú stækka menn bara enn meira og klára Danina.
Já þetta er sennilega harðasta viðtal sem ég hef hlustað á. Dagur Sigurðsson maður. Takk.
Snorri er í einhverri 7D skák. Gerir viljandi jafntefli á móti Sviss þannig Svíþjóð detti niður á hælana og geri jafntefli á móti Ungverjalandi sem endar svo á því að við vinnum Slóvena og Svíar sitja eftir. Snyrtilegt.

