Jón Pétur retweeted
Ég er svo ógeðslega hræddur um að flokkar komist til valda hérna sem ætla að hrófla við borgarlínunni. Bara rétt fikta nógu mikið í henni, til þess að þetta hætti að vera hágæða verkefni og verði þess í stað hin dæmigerða íslenska æpa. Þetta er það eina sem ég hef verið spenntur fyrir í Reykjavík, síðan ég man eftir mér.
Ég finn að ég er byrjaður að þróa með mér svona kaldhæðna- brynju um niðurstöður kosninganna. Eins og mér sé dröll, en mér er ekki dröll.
Ég keyri heavy mikið, þú veist stundum 2000km á mánuði. Tek strætó heavy mikið. Hjóla smá. á þrjú börn, hund. Með allt í gangi. Leiðakerfi og tíðni borgarlínunnar myndi gjörbreyta því hvernig ég fer um, þó ég myndi samt mest hossast á bíl.
Mér finnst engar gáfulegar umræður hafa farið fram um borgarlínuna fyrir þessar kosningar. Þeir sem eru á móti, og eru með einhverjar þriðja flokks útfærslur að stinga upp á staðinn - nálgast borgarlínuna sem samgönguverkefni, en hún er svo miklu miklu miklu meira. Að láta eins og þetta sé einhver trilljarða bein fyrir Samfylkinga-fólk, bara plís. Þetta er sérsniðin lausn sem mun koma einstaklega vel við borgarbúa, sama hvort þeir nýti sér vagnana eða ekki.
Hún saumar saman borg sem fúnkerar illa, hún mætir þörfum yngri kynslóðar og hún kallar á mjög organíska þéttingu, þar sem þjónusta og íbúðir byggjast í grennd við stoppistöðvar.
Bara umræðurnar um Suðurlandsbrautina, hafa aldrei farið dýpra en hróp og köll um að það sé verið að þrengja umferð. Hefur fólk kynnt sér hvernig skipulagið við Suðurlandsbrautina er? Það er ógeðslega flott og ógeðslega spennandi, býr til alvöru borgargötu í gegnum Reykjavík. Þarna mun vera stræti stútfullt af þjónustu og íbúum við fokking þjóðarleikvanginn! Og á þessari leið, í götum fyrir ofan er ennþá bara mikið af húsnæði sem stendur autt eða er í dularfullri notkun, þar sem eitthvað spennandi getur kviknað, ólíkt því steríla drasli sem sem getur greitt leigu í því nýbyggða.
Það er einhver dýpt farin úr umræðunum um þetta. Og þvílík vonbrigði að sjá eftir Hildi Björns fara þennan veg. Þetta er manneskja sem ég hef heyrt tala af innlifun um borgarlínuna. Þetta er manneskja sem hefur hingað til staðið keik og kosið með öllum þeim ákvörðunum sem hafa komið þessu verkefni á þann stað sem það er í dag.
Og svo er hún mætt til Tóta að hnussa og fussa og láta eins og þetta sé eitthvað tómt píp úr einhverjum galgopum á Kaffi Vest. Djöfulsins drasl.
Allavega þegar við Hildur hittumst á Hosiló í vetur og hún spurði mig hvort ég vildi taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi kosningar - þá var hún talsmaður Borgarlínunnar. Hvað gerðist í millitíðinni - ég veit það ekki.
Það er fólk í framboði, það er fólk sem mun enda í borgarstjórn sem segist ætla að byggja íbúðir í útjaðri Reykjavíkur og laga umferðina - þau segja þetta oft í sömu setningu. Þau ætla að laga umferðina með því að bæta við bílum í hana. Ég veit ekki alveg hvað maður segir við þessu. Er þinn frambjóðandi heimskur? eða er hann lygari?
Það verður ekki bæði haldið og sleppt. Það sem við spörum með því að þynna út Reykjavík, því töpum við svo í umferðinni - og öfugt.
Borgarlínan er svo fokking vandað verkefni. Og það er ekki að ástæðulausu að það eru bara gamlir karlar sem skrifa greinar gegn henni - (og enginn þeirra minnist á skipulagsþáttinn)
Á að neyða fólk upp í borgarlínuna? Nei maður. Alls ekki. En þú ert neyddur til að borga skatta mánaðarlega og pls setjum þá í eitthvað sem er alvöru.
En þú veist, líklega mun þetta fara til fjandans. Ég jafna mig, heima vorum við Alþýðubandalagsfólk á meðan Davíð Oddsson var Davíð Oddsson og við kunnum þá list að éta skít betur en aðrir.
Ég verð samt að reykja vindil og hlusta á rapp.
(Að gefnu tilefni, hef aldrei kosið Samfylkinguna og myndi aldrei taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins)
Jón Pétur retweeted
Sharing this A+ analysis on the Luka trade by the always insightful @chris_kratovil
Makes a ton of sense to me from the #txlege angle - esp considering Lite Patrick likely done next Session.
Good stuff. Read it 👇🏼
#txlege
#MFFL
Jón Bjarnason skrifaði sömu grein fyrir 144 árum, þá um Ölfusárbrú.
Allt bendir til að Fossvogsbrú verði óarðbær og hafi neikvætt núvirði eins og raunar borgarlínuverkefnið í heild. Margar aðrar samgönguframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu eru arðbærar og þarfari. Nær væri t.d. að efla núverandi strætókerfi.
xd.is/2024/02/09/fokdyr-foss…
Ef Sjálfstæðisflokkurinn kemst til valda í borginni verður loksins sett alvöru púður í það að sanna hverjir það voru sem raunverulega byggðu pýramídana. Voru papar írskir munkar? Eða voru þeir kannski gestir frá öðrum plánetum?
17
Er það bara ég eða eru tilboð fyrirtækja þar sem hluti kaupverðsins fer til góðgerðamáls ekki frekar úrkynjað og vulgar fyrirbæri? Kosta auglýsingarnar um tilboðin ekki meira en ágóðinn á endanum?
Það er svo nasty að hugsa um markaðsgúrúana sem sáu stríðið í Úkraínu sem tækifæri.
20
Mér skilst að Sölvi Blöndal sé á lokametrunum að fá handritin heim frá Danmörku og að samningar liggi fyrir um kaup Amazon á þeim. Stór dagur fyrir íslenskar bókmenntir! 🍾💯✅
Það er erfitt að halda við stórum skrokkum eins og á Viktori Gísla en nú er LeBron orðinn 37 ára og enn í peak formi. Hann eyðir 1 milljón dollara í líkamann á ári. Við sem þjóð verðum að krefjast 130 milljóna króna viðauka í fjárlögin til að setja Viktor Gísla á sama prógram.
Ég er með main spotify aðgang fyrir Wrapped sem er mjög curated. Svo er ég með priv sem ég nota til að hlusta á tónlist.
2
42
Gaman að geta loksins deilt þessu spennandi verkefni með almenningi. Á mathalla.is verður hægt að finna allar helstu mathallir á Íslandi á gagnvirku landakorti. Við uppfærum kortið daglega. Spennandi tímar framundan!
127

















